Sundskóli Sóleyjar
 
Sundskóli Sóleyjar
 
Forsíða
Sundskólinn
Námskeið
Ungbarnasund
Barnasund
Aðstaðan
Skráning námskeið
Spurningar & svör
Myndir
Hafa samband
Annað
 
Njóttu vatnsins með barninu þínu
 
Spurningar og svör  
   

Af hverju geta ungabörn kafað?
Öll börn fæðast með köfunarviðbrögð. Rétt við raddböndin eru sérstakir efnaviðtakar og verði þeir varir við vökva sem er líkamanum óviðkomandi, sjá þeir sjálfkrafa til þess að barkinn lokist og barnið dragi ekki andann meðan það er í kafi. Þessi meðfæddu viðbrögð koma hjartanu einnig til að slá hægar. Þessum viðbrögðum er stjórnað frá heilastofninum og þau eru virk þar til barnið er um hálfs árs, jafnvel lengur.

Hvenær á að byrja?
Heppilegast er að byrja með börn á aldrinum 2-6 mánaða og/eða þegar þau eru um 4-5 kíló. Á þeim aldri er barnið farið að halda höfði og hefur ósjálfrátt köfunarviðbragð, en köfunarviðbragðið er meðfætt. Þetta meðfædda viðbragð barnsins lýsir sér þannig að þegar vatn kemst í snertingu við nema í barkalokinu, lokast barkinn í nokkrar sekúndur og á meðan kemst ekkert vatn niður í lungun. Eftir 6 mánaða aldur fer þetta viðbragð dvínandi.

Getur hver sem er kennt ungbarnasund?
Sundkennari þarf að vera sérmenntaður ungbarnasundkennari.


Ertu með einhverjar spurningar um ungbarnasund og sundkennslu barna?
Hringdu þá í Sóleyju í síma 898 1496 eða sendu henni póst.




© 2011 Sundskóli Sóleyjar